Bílamálun og sprautun
Málun í lokuðum sprautuklefa, þar sem liturinn er blandaður eftir litakóða bílsins.
Bílamálun og sprautun fer fram í lokuðum sprautuklefa þar sem hiti, loftræsting og hreinlæti eru undir stjórn. Það skiptir máli fyrir endingu og útlit að lakkið sé borið á við réttar aðstæður.
Við málum einstaka hluta, eins og stuðara, hurð eða bretti, og stærri fleti þegar þess þarf. Liturinn er blandaður eftir litakóða bílsins og borinn saman við lakkið sem fyrir er, svo nýmálaði hlutinn falli að restinni af bílnum.
Hvenær þarftu málun?
Eftir réttingu eða plastviðgerð, þegar lakk hefur rispast niður í grunn, flagnað eða skemmst af grjótkasti, eða þegar ryð er farið að myndast.
Fagfólk í bílamálun
Ívar Hauksson, eigandi Réttverks, er meistari í bílamálun og starfsfólkið okkar hefur menntun og reynslu á þessu sviði. Við notum viðurkennd efni og vinnum eftir stöðlum framleiðenda.
Tryggingafélagið
Ef málunin er hluti af tjóni sem trygging greiðir sjáum við um samskiptin við tryggingafélagið, hvort sem það er TM, VÍS, Sjóvá eða Vörður. Hringdu eða renndu við og við skoðum bílinn með þér.



Viltu láta skoða bílinn?
Engin tímapöntun í tjónaskoðun. Renndu við eða hringdu.