Lakkfrískun
Hreinsun og mössun sem nær gljáanum aftur upp í lakkinu.
Með tímanum missir lakkið gljáann. Fínar rispur, þvottaför, mött svæði og óhreinindi sem hafa fest í yfirborðinu gera bílinn eldri að sjá en hann er. Lakkfrískun miðar að því að ná upp gljáa og dýpt í lakkinu án þess að mála bílinn.
Hvað er gert?
Lakkið er þrifið vandlega og síðan massað til að jafna yfirborðið og draga úr fínum rispum. Hversu mikið næst fer eftir ástandi lakksins. Djúpar rispur sem ná í gegnum glæruna hverfa ekki við mössun; þær þarf að laga með málun, og við segjum þér frá því ef sú er raunin.
Hvenær hentar lakkfrískun?
Til dæmis áður en bíll er seldur, eftir að hann hefur staðið lengi, eða einfaldlega þegar þig langar að hressa upp á útlitið. Hún getur líka hentað eftir viðgerð, svo að nýmálaður hluti og restin af bílnum líti eins út.
Efni og tryggingar
Við notum viðurkennd efni og tækjabúnað. Ef lakkskemmdir eru hluti af tjóni sjáum við um samskiptin við tryggingafélagið. Hafðu samband eða renndu við og við skoðum lakkið með þér og segjum hvað er raunhæft að ná fram.

Viltu láta skoða bílinn?
Engin tímapöntun í tjónaskoðun. Renndu við eða hringdu.