Réttingar
Við komum bílnum aftur í rétt form eftir árekstur, ákeyrslu eða annað tjón.
Réttingar snúast um að koma yfirbyggingu bílsins aftur í rétt form eftir tjón. Það getur átt við allt frá lítilli dæld í hurð yfir í stærra tjón þar sem burðarvirki eða grind bílsins hefur orðið fyrir höggi.
Hvenær þarftu réttingu?
Eftir árekstur eða ákeyrslu, þegar bíllinn hefur rekist utan í, eða ef þú tekur eftir að hurðir, húdd eða skott lokast ekki eins og áður. Stundum sést tjónið vel, en stundum leynist það undir yfirborðinu. Þess vegna skoðum við bílinn vandlega áður en viðgerð hefst.
Hvernig vinnum við?
Við vinnum eftir stöðlum framleiðenda og notum viðurkennd efni og tækjabúnað. Réttverk er viðurkennt réttingaverkstæði á lista Samgöngustofu og býr að yfir 30 ára reynslu. Að réttingu lokinni er viðgerði hlutinn málaður í lit bílsins í sprautuklefanum okkar.
Tryggingafélagið
Ef tjónið fellur undir tryggingu sjáum við um samskiptin við tryggingafélagið. Við vinnum fyrir öll tryggingafélögin: TM, VÍS, Sjóvá og Vörð. Þú þarft ekki að panta tíma í tjónaskoðun; renndu við á opnunartíma og við metum tjónið á staðnum.


Viltu láta skoða bílinn?
Engin tímapöntun í tjónaskoðun. Renndu við eða hringdu.