Um Réttverk
Réttinga- og bílamálunarverkstæði á Viðarhöfða 2 í Reykjavík, með yfir 30 ára reynslu.
Réttverk ehf. er réttinga- og bílamálunarverkstæði á Viðarhöfða 2 í Reykjavík og þjónar öllu höfuðborgarsvæðinu. Á bak við verkstæðið er yfir 30 ára reynsla af réttingum og bílamálun.
Við erum viðurkennt réttingaverkstæði á lista Samgöngustofu. Við vinnum eftir stöðlum framleiðenda og notum viðurkennd efni og tækjabúnað, því viðgerð á að skila bílnum öruggum og í góðu ástandi.
Eigandinn, Ívar Hauksson, er meistari í bílamálun. Með honum starfar fólk með menntun og reynslu í faginu, og við leggjum áherslu á að taka á móti nemum og miðla þekkingunni áfram.
Við vinnum fyrir bílaumboð, tryggingafélög og fyrirtæki
Við vinnum fyrir öll tryggingafélögin, TM, VÍS, Sjóvá og Vörð, auk bílaumboða, fyrirtækja og einstaklinga. Tjónaskoðun er án tímapöntunar: renndu við og fáðu mat á tjóninu á staðnum.

Starfsfólk
Fólkið á verkstæðinu

Ívar Hauksson
Meistari í bílamálun, eigandi

Hannes Sampsted
Bílamálun

Daníel Már Þorsteinsson
Sveinn í bílamálun

Tjörvi Gíslason
Nemi í bílamálun