Plastviðgerðir
Rifinn eða brotinn stuðari þarf ekki alltaf að fara í ruslið.
Margir hlutir á nútímabílum eru úr plasti, til dæmis stuðarar, brettakantar, speglahús og hlífar. Þegar plasthlutur rifnar, brotnar eða dældast þarf ekki alltaf að skipta honum út. Oft er hægt að gera við hann og halda upprunalega hlutnum.
Hvernig fer viðgerðin fram?
Skemmdin er hreinsuð, sprungur og rifur styrktar og fylltar og yfirborðið mótað að upprunalegri lögun. Að því loknu er hluturinn grunnaður og málaður í lit bílsins.
Hvenær hentar plastviðgerð?
Þegar stuðari hefur rifnað eftir smá ákeyrslu, festingar hafa brotnað eða dæld hefur myndast. Hvort viðgerð borgar sig fer eftir umfangi tjónsins og hvar það er. Ef hluturinn er of illa farinn segjum við þér það hreinskilnislega og mælum með nýjum hlut. Plastviðgerð getur sparað bæði tíma og efni, sérstaklega þegar varahlutir eru lengi á leiðinni.
Tryggingafélagið
Ef tjónið fellur undir tryggingu sjáum við um samskiptin við tryggingafélagið, hvort sem það er TM, VÍS, Sjóvá eða Vörður. Renndu við í tjónaskoðun án tímapöntunar og við metum hvort hægt sé að gera við.

Viltu láta skoða bílinn?
Engin tímapöntun í tjónaskoðun. Renndu við eða hringdu.